Raki og mygla: hvað á að skoða áður en málað er
Bletturinn er ekki málaður fyrr en vitað er hvaðan vatnið kemur.
Finndu upptökin
Skoðaðu hvort bletturinn er undir glugga, við bað, á útvegg eða í lofti undir þaki. Lokaðu sýnilegum krana ef þaðan lekur. Ekki mála yfir blautt: málningin heldur vatninu í múrinum. Myndaðu blettinn og rörið ef þú sérð það.
Hvenær þú hættir sjálfur
Loftið dropar, veggurinn er linur, eða lykt af myglu er í öllu herberginu. Þá er hringt, ekki málað. Segðu hæðina, hvort veggurinn er útveggur, og hvort vatninu hafi verið lokað. Kennitala á reikningnum á að stemma við tilboðið.
Byggingaraðilar með síma eru á listanum, líka utan Reykjavíkur þegar síminn er skráður.
Heimild: HMS — fagaðilar í mannvirkjagerð